- Forsíða
- Um Póstmannafélagið
- Orlofsmál
- Vinnustaðurinn
- Lífeyrissjóðir
- Samningamál
- Sjóðir
- Eftirlaunadeild
- Hvert á að leita?
- Lög og reglugerðir
- Tenglar
Ákvæði um hvíldartíma
Í kjarasamningi er að finna ítarlegan texta um hvíldartíma starfsmanna. Aðalatriðin eru þau að starfsmaður skal fá a.m.k. 11 tíma hvíld á sólarhring og a.m.k. einn frídag í viku.
Að svo miklu leyti sem því verður við komið skal vikulegur frídagur vera á sunnudegi og skulu allir þeir sem starfa hjá Íslandspósti hf., fá frí á þeim degi. Þó má Íslandspóstur hf., með samkomulagi við starfsmenn sína fresta vikulegum frídegi, þar sem sérstakar ástæður gera slík frávik nauðsynleg. Sé sérstök þörf á að skipuleggja vinnu þannig að vikulegum frídegi sé frestað skal um það gerður kjarasamningur. Má þá haga töku frídaga þannig að teknir séu tveir frídagar saman aðra hverja helgi (laugardag og sunnudag). Falli frídagar aftur á móti á virka daga vegna ófyrirséðra orsaka skerðir það ekki rétt starfsmanna til fastra launa og vaktaálags.
Hvað varðar gildissvið, hvíldartíma, vinnuhlé og fleira vísast til sambærilegra ákvæða og eru í samningi ASI og VSÍ frá 30. desember 1996 og kafla 2.6 í kjarasamningi PFÍ og Íslandspósts sem finna má hér á vefnum.