12.1.2012
Launahækkun 1. febrúar 2012
Laun hækka 1. febrúar samkv. kjarasamningi milli Póstmannafélagsins og Íslandspósts. Félagsmenn fengu senda Handbók Póstmanna 2012 í desember sl. Félagsmenn sem ekki fengu senda bók eru beðnir að hafa samband við skrifstofu PFÍ. Auka eintök af Handbókinni eru á stærri vinnustöðum.
meira ->
5.1.2012
Umsóknir í Starfsmenntunarsjóð PFÍ
Næsti fundur stjórnar Starfsmenntunarsjóðs PFÍ verður í febrúar nk. Með umsóknum þarf að senda reikning frá skóla eða námskeiðshaldara. Útprentun úr netbanka er ekki nægjanlegt. Afgreiðsla styrks gæti dregist ef reikning vantar.
meira ->
1.12.2011
Jólaball Póstmanna
Árlegt jólaball Póstmanna verður haldið í Gullhömrum Þjóðhildarstíg 2 í Grafarholti sunnudaginn 11. desember k. 14:00. Jólasveinar koma í heimsókn og öll börn fá nammipoka. Kaffi og meðlæti fyrir alla. Jólaballið er í boði Póstmannafélagsins, Íslandspósts og Starfsmannafélags Íslandspósts.
29.11.2011
Aðventufagnaður eftirlaunadeildar 13. desember
Aðventufagnaður eftirlaunadeildar Póstmannafélagsins verður þriðjudaginn 13. desember kl. 14:00 að Grettisgötu 89 1. hæð. Upplestur úr jólabók. Happdrætti og margir góðir vinningar. Heitt súkkulaði og jólabakkelsi.
16.11.2011
Desemberuppbót 2011
Desemberuppbótin 2011 er 48.800kr. miðað við fullt starf. Sérstakt álag greiðist með desemberuppbót 15.000kr samkvæmt kjarasamningi sem tók gildi 1. júní 2011.
Eldri fréttir
- Forsíða
- Um Póstmannafélagið
- Orlofsmál
- Vinnustaðurinn
- Lífeyrissjóðir
- Samningamál
- Sjóðir
- Eftirlaunadeild
- Hvert á að leita?
- Lög og reglugerðir
- Tenglar
Nýtt á vefnum
5.1.2012
Næsti fundur starfsmenntunarsjóðs
7.7.2011
Útilegukortið - Veiðikortið - Hótel gistimiðar eru til sölu á skrifstofunni
7.3.2011
13.12.2010
22.11.2010

